simonperezname: Simon Olafsson nick: Perez, Villimadurinn & Monzi born: 3. Okt. 1985 home: Seydisfjord city car: Audi A6 Quattro status: relationship with: Brynja Drofn Þorarinsdottir msn: simon_olafsson@hotmail.com
|
|
Friday, September 15, 2006
heyriði.. er hættur hérna því þetta blogdrive.com virkar bara þegar því hentar!!!! kominn yfir í http://perez.bloggar.is/ sem virkar vonandi betur.. kíkið þangað! kommentið og skoðið betur! með von um betri síðu.. kveðja Perezinn
Posted at 9/15/2006 10:29:39 pm by simonperez
linkaðu'ta
Friday, August 18, 2006
.....já eða íslensk þýðing á þessu væri td. brjálæði í sólinni!!
Lítið í fréttum en samt e-ð: Það var brjáluð sól í gær og var þá kaallinn bara að steypa gangstétt í Votahvamminum einsog ekkert annað væri sjálfsagðara! Svo í dag var enn meiri sól eeða allavegana jafn mikil og í gær.... og ekki var síðra verkefnið hjá Péreznum í dag! Það fól í sér að saga/skera olíumöl meðfram kantsteini (svona steypukanntur meðfram götunni)... þess má geta að olíumölin er mjög sennilega frá því fyrirtæki sem að Bensinn vinnur hjá og fyrst hún tengist Bensa þá má vænta að olíumölin sé góð!!
Leikur á morgun.. við ÍR í Gettói Íslands aka. Breiðholtið! Nú blæs hann allur í andlitið á okkur og þurfa menn að standa sig og hrifsa 3 stig af þessum fýrum þarna fyrir sunnan.... fyrstu 11 eru svo hljóðandi:
GK:Benji RB:Heartbreaker CB:Sússi CB:Drago LB:Ljuba DMC:Rauðvínið DMC:Coach RM:Peacjohn AMC:Mr.Östrup LM:Balli FW:Húni Bárður
bekkur: Pêrez, Dany Zuko, Stones, Maji & the Cop Benji:JónKolbeinn|Heartbreaker:Martin|Sússi:Elmar|Drago:Ljubadrag|Ljuba:LjubizaRadavanovic |Rauðvínið:Tommi|Coach:Binni|Peacjohn:Friðjón|Mr.Östrup:Jeppe|Balli:BaldurHúniBárður:Sveinbjörn |Pêrez:Kaallinn|DannyZuko:DanniPálma|Stones:Steinar|Maji:MaggiKarls|theCop:VilliAdda
Yeah... þannig er það bara!! ÞIð hugsið vel til okkar og sendið okkur góða strauma!
Pêrez101 out!
Posted at 8/18/2006 11:53:09 pm by simonperez
linkaðu'ta
Sunday, August 13, 2006
si senjorita ... uno grande!
...öööössss það væri nett að vera á spáni og djamma og djúsa núna!! bara pæling.....
jább ég vil afsaka mig hérna.. búinn að vera aaaarfaslakur í blogginu en mun reyna að bæta mig, lofa samt engu!
Tók Bibbz og bloggið hans svo alvarlega að ég fór í bónus og keypti
Lucky number Slevin og verð að undirstrika orð hans um þessa mynd!
þvííílíka ssssssniiiildin!!!!!! alger fagmennska
Nú er Ögmundur og frú að fara að gerast dönsk.. mér lýst ekki á þetta!
Munið að þeir sem fara þarna út þeir breytast alltaf... þeir verða
heillaðir af þessu landi.. vitiði afhverju?? Það er útaf því að bjórinn
er svo góður!!! þetta er maður að heyra....
Talandi um að heyra.. heyrði í Dagson (já þetta er ekki
stafsetningarvilla, nickið mitt á Íbba!) um daginn, hann bað að heilsa
kútunum!! En já hvar er Bangsi, spurðirðu Bibbi... hann er á Malloca -
síðast þegar ég vissi!
Pêrezinn er farinn að hlakka til að komast í borgina sína aftur.. og
fara að stjórna 101dOWNtOWN aftur!! það er allt í reiðileysi og
rugli.....
Pêrez kveður að sinni... ei þunnur! hvað er að gerast er ekki Sunnudagur, maður spyr sig?!?!
Posted at 8/13/2006 9:47:40 pm by simonperez
linkaðu'ta
Saturday, July 15, 2006
...hvað er það með fólk þessa dagana að vera ægilega mikið á móti félaga mínum Marco??? þetta er bara fíflaháttur og eitt stórt samsæri!!! Hann er dirty leikmaður og allt það en svona er bara leifilegt að gera, maður er ekki haldinn þagnaskyldu inná þúfutúni í boltaleik... pfff... frakkar eru bara pappakassar og ekkert annað! Betra liði vann og ekkert væl!!! En yfir að Zizou.... hvað finnst ykkur um það að hann sé valinn besti maður mótsins?? ég bara spyr... þvílík og önnur eins þvæla, Fifa hefur þó e-ð til að redda, því kosningin fór fram í hálfleik! En ég vona sko að Fifa svipti hann titlinum...... ekki það að hann er langbesti leikmaður í boltanum í dag! en svona gerir maður ekki... sama hvað! Hann var að komast í tölu með Pele og þeim köppum og hefði geta verið með kappastæla og hvað sem manni getur dottið í hug, grætt enn meira (þó hann þurfi þess ekkert) orðið vinsælli!!! Eeeen neei þá gerir hann svona.. ekki myndi ég vilja að barnið mitt ( ef ég ætti svoleiðis) héldi uppá hann og hann væri idolið hjá barninu... svona brjálæðingur!
En aftur á móti finnst mér þetta alveg skiljanlegt hjá honum Zidane, og ég hefði ábyggilega gert hið sama! maður lætur bara ekki einhvern dúdda vaða yfir mann og manns fjölskyldu og vini á skítugum skónum.........
...það fór sem fór... fer sem fer hjá Fifa... hvernig sem því líður þá ætla ég í bælið!!
Pêrezinn kveður að sinni...
Posted at 7/15/2006 12:42:33 am by simonperez
linkaðu'ta
Wednesday, July 12, 2006
þetta má ekki viðgangast!!!
jáá kveeeeldið krakkar mínir nær og fjær.... þetta gengur nú ekki!!! maður er ekki búinn að blogga í askoti langann tíma og menn á borð við Dúllarann farnir að hvarta yfir því!!! Reddum því á skotstundu...
mest lítið í fréttum enda hver nennir að lesa um einhverjar fréttir af mér.... segi svona! heyrðu kaallinn verður hérna fyrir austan í haust fram að áramótum... at least! bara að dunda við að klára samninginn og svona.. hvað um það!
boltinn gengur svona lala... það er allt í járnum enn og menn þurfa að fara að taka sig saman í andlitinu svo ekki illa fari! Skemmtilegt veðmál sem ég varð vitni að um daginn.. reyndar á barnum og veit ekki hversu mikið menn voru að taka þessu alvarlega... en hvað um það svona hljóðaði veðmálið hjá E og T: Semsagt ef að Huginn endar ofar á töflunni en Aftureldingu að deildinni lokinni þá myndi T totta E... og svo aftur á móti ætti E að totta T ef Afturelding verði fyrir ofan Huginn!
skemmtilegt nokk hehe.. og spennandi að sjá hvort að menn standi við svona veðmál.. ég efast stórlega en samt gaman að! hehehe
Pêrez kveður
Posted at 7/12/2006 11:40:28 pm by simonperez
linkaðu'ta
Monday, May 08, 2006
sælar stúlkur.. á ég að hringja á vælubílinn???
Höttur - Huginn var á sunnudaginn.... ssssssssssssss... þvílíkur leikur, þá meinar ég ekki knattspyrnulegaséð á góðan hátt!! við vorum að spila skelfilega... sem kom greinilega í ljós hér í kommentum þegar Dóri Skarp sagði að hann hefði skorað 2 hehe..... een það var hiti í leiknum, einsog að vanda í leik milli þessara liða! áhorfendur tóku þátt og allt einsog það á að vera! ...kaaanski heldur mikil harka fyrir svona æfingarleik.. en svona enda knattspyrnuleikir oft og svona er bara þessi íþrótt!! ekki fyrir vælukjóa og hvað annað eins!!!!
..kaallinn lenti í umdeildri tæklingu/árekstri... við Óliver í marki Hattar, ég bara að reyna að skora og hann að verja markið sem og honum tókst heh!! en það er nú allt í lagi með hann að mér sýndist og skildist í dag... enda lenti hnéð á mér í sköflunginum á honum... hnéð á mér stokkbólgið og í ruglinu!! blæddi inná lið og e-ð skemmtilegt... brið bara voltaren og ligg uppí sófa.. ekki verra hehehehe
verð vonandi klár í slaginn á sunnudag við Fjarðarbyggð... yfir og út!!
Pêrez1©1
Posted at 5/8/2006 10:32:56 pm by simonperez
linkaðu'ta
Saturday, May 06, 2006
..hvernig er það.. ætlar enginn
fagmaður að fara að gefa sig fram fyrir þetta sssnildarlega grín í mér
eða.. og svona askoti langlíft líka!! hehe
Allavega póstur Nylon að þessu sinni hljómaði svona:
NYLON
FLOKKURINN HELDUR ÁFRAM AÐ HEILLA BRETANA NYLON BOÐIÐ Í TÓNLEIKAFERÐ
MEÐ GIRLS ALOUD Í LOK MAÍ Þriggja daga frí á milli tónleikaferða -
Þrisvar á Wembley Arena á 20 dögum
Nylon
flokkurinn, sem nú er á fullri ferð í Bretlandi að kynna sig og nýja
lagið sitt Losing a Friend, heldur áfram að vinna sigra þar ytra. Nú
þegar tónleikaferðin með Westlife er hálfnuð hefur stúlkunum verið
boðið að koma á tónleikaferð með stúlknasveitinni Girls Aloud um
Bretland. Tónleikaferðin með Girls Aloud hefst þann 22.maí nk eða
þremur dögum eftir að Westlife ferðinni líkur þannig að stúlkurnar fá
stutt en þó langþráð þriggja daga frí. Girls Aloud ásamt Sugababes eru
án efa vinsælustu stúlknasöngsveitir Breta um þessar mundir.
TÓNLEIKARNIR
MEÐ WESTLIFE GANGA FRÁBÆRLEGA Tónleikaferðin með Westlife gengur
frábærlega en um helgina voru stúlkurnar í Birmingham og Newcastle.
Þaðan liggur leiðin inní Skotland og um næstu helgi verða stelpurnar í
Glasgow. Tónleikaferðin sem er framundan með Girls Aloud er um það bil
helmingi styttri og munu þær koma við í flestum þeim tónleikahöllum sem
stúlkurnar eru að þræða núna með Westlife. Það má því segja að Nylon
stúlkurnar séu að verða heimavanar í mörgum af stærstu tónleikahöllum
Bretlands.
SMÁSKÍFAN
AF LOSING A FRIEND GEFIN ÚT 19. JÚNÍ Tónleikarnir með Westlife og Girls
Aloud gefa stúlkunum ótrúlega öflugt tækifæri til að koma laginu sínu
nýja á framfæri en þegar báðar tónleikaferðirnar verða búnar þá munu
stúlkurnar hafa komið fram fyrir rúmlega 300.000 manns. Girls Aloud
ferðinni líkur 3. júní en þá munu stúlkurnar einblína á breska
fjölmiðla og er búið að bóka stúlkurnar í marga af helstu útvarps- og
sjónvarpsþætti Bretlands.
Smáskífan með Losing a friend kemur svo út 19. júní.
DAGSETNINGAR Á TÓNLEIKAFERÐ NYLON OG GIRLS ALOUD
22/05/2006 Nottingham Arena - Nottingham
23/05/2006 Hallam FM Arena - Sheffield
24/05/2006 Metro Radio Arena - Newcastle
26/05/2006 Nia Birmingham
27/05/2006 M.E.N. Arena - Manchester
28/05/2006 SECC - Glasgow
30/05/2006 Cardiff International Arena - Cardiff
31/05/2006 Bournemouth International Centre - Bournemouth
01/06/2006 The Brighton Centre - Brighton
03/06/2006 Wembley Arena - London
Pêrez1©1 kveður að sinni... þetta er nægur lestur í bili!
samt
ný könnun og úrslit úr gömlu voru: mmm BEER 42% eða 5 atkvæði af 12 ..
hvaða bull er þetta eiginlega??!!?Ð"R$#=()/ verðið að kjósa meira,
commenta og skilja eftir kveðju!
Lov jú gæs!
Posted at 5/6/2006 1:06:57 am by simonperez
linkaðu'ta
Wednesday, May 03, 2006
já lítið á tímasetninguna!!
yup... kaallinn hefur ekkert að gera og klukkan 07:30 að staðartíma hér á Egs! Löngu kominn úr sturtu, eftir morgunskokkið.. rétt tæpir 4 km! jább það er rétt, þvílíkur dugnaður hugsiði væntanlega!! hehe ;) - Það er nú lítið í fréttum þessa dagana.. nema reisingar eru í fullum gangi í Votahvamminum hjá okkur í ÍAV ( eða PAV = Pólskir Aðalverktakar.. það eru að verða fleiri pólverjar efitr á þessum vinnu stað heldur en íslendingar!! pfff)
- júúú svo er það nú að aðeins 22 dagar í Salou.. sjitturinn titturinn, hóran og mellan hvað þetta verður gaman!! vonandi verður mér bara ekki boðið einsog í síðust utanlandaferðum, hass eða marijuana af öðrumhverjum manni eða kannski jafnvel spurt mig hvort ég sé að selja.. hehe jább lennt í þessu öllu... hvað næst? kannski ég komi með skoðanakönnun um það!
- nú í dag er fyrsti og næst síðasti dagur í innskráningu í iðnó.. ætli maður bombi ekki inn einni svoleiðis.. þó svo að vera ekki alveg viss hvað maður gerir næsta haust! Konan ætlar ekki að koma suður, þvertekur fyrir það enda að fara að útskrifast hér um jólin næstu.. svoo þetta er hugsun.....
- man ekki neitt meira í fréttum að svo stöddu.... hvað ætlar fólk samt að gera um versló??? endilega kommentið.... er það eyjar eða hvað??
adios amigos... uno grande servesa!!! ;) 1©1 Pêrez
Posted at 5/3/2006 8:30:47 am by simonperez
linkaðu'ta
Sunday, April 23, 2006
...sit ég hérna eftir matinn. Hef ekki nennt að fara í sturtu eftir æfinguna áðan.. held e´g fari að drífa í því barasta, og skella svo Just Friends í tækið og kúra hjá konunni!! búbbúbbúbb...Við Hugins menn spiluðum við Sindra í ööömurlegum leik á Laugardaginn at 1600 hours.. á Fellavelli! Völlurinn frekar harður en samt gott að komast út á 11mannavöll... við áttum svona frekar mjög slakan leik, en samt miklu betri (hef ég heyrt) en Sindri.. já hef ég heyrt því mér fannst við vera öööömurlega skítllélegir! þannig er það bara heh...ennóg um boltann.. kíkti í tieti í gær, hjá Systur minni, Hallveigu , Skúla og Söndur Sif... jáá kannast kannski ekki allir lesendur þessi nöfn en jább en hvað með það! ...var bara keyrandi enda partýið úti í útnára Egs. Iðavöllum... hörku stemmari samt og hefði verið gott djamm að vera útúr drukkinn þarna!! en lífið er ekki alltaf dans á rósum.. hver kom eiginlega með þetta orðatiltæki?? það passar engan vegin við að dansa á rósum er alveg ábyggilega ekki þæginlegt og gott né auðvelt... ætli mannkynið sé bara að nota þetta vitlaust...?? seg mér!mun loada inn myndir úr teitinu á nýja síðu mína: www.perez.photoape.com © Pêrez
Posted at 4/23/2006 10:43:27 pm by simonperez
linkaðu'ta
Thursday, March 30, 2006
What's your favourite lovesong..?
Ágætu brúðhjón og veislugestir!
....jáá
einhverjir kannast kannski við þessa bryjun, enda þaulreyndur bloggari
sem byrjaði svona í sínu síðasta bloggi.. sem var fyrir um 10 -11
mánuðum hehe.. Óli 'Tuborg' Gústa er sá góði maður! Een yfir í allt
annað....
þetta helst er í
fréttum: Kaallinn er bara alltaf að vinna og vinna og vinna.. reyna að
hafa einhverja aura í vasann sem gerist mest lítið, þetta fer allt í
afborganir, leigu, mat, benzín og áfengi... alls ekki í þessari röð
samt!! hehe ;) Er að horfa á ungfrú Rvk núna.. finnst þær nú
frekar slappar þessar stelpur..
Stefna helgarinnar er að vinna, vinna vinna og vinna... kíkja kannski á
snjókrossið ef tími gefst... slappa af með kærustunni... og jafnvel
kíkja e-ð í fjörðinn fagra! hver veit samt með dansiballið þarna á
laugardagskveld..!?! ..en yfir í ástar lagið...
...
I take you to the candy shop
I'll let you lick the lollypop
Go 'head girl, don't you stop
Keep going 'til you hit the spot
© Pêrez
Posted at 3/30/2006 10:56:41 pm by simonperez
linkaðu'ta
|
|
|